Færsluflokkur: Bloggar

Úr gleði í hrylling

En það kemur ekki fram í fréttinni hvort fólkið hafi fengið nauðsynlega áfallahjálp eftir þessa hryllilegu lífsreynslu.


mbl.is Gleðin breyttist í hrylling
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ósammála ......

..... Þór Saari um það að ekki sé hægt að koma á endurbótum á Alþingi. Það er t.d. umtalsverð bót að hann hverfi af þingi.
mbl.is Þór ekki ofarlega á lista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„Gefið mér ....

salt að eta svo að tungan skorpni í mínum munni og minn harmur þagni!"

Þessi orð eru úr kvæðinu Sól eftir Jóhann Sigurjónsson sem mun vera fyrsta ljóð sem ort er á íslensku án ríms og stuðla. (Með fyrirvara um að mig misminni ekki um menntaskólalærdóm minn).

 En þetta á þó svo sannarlega við nú.


mbl.is Segir engan eðlismun á saltinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær .....

..... fer hann eiginlega til Grænhöfðaeyja? Hann var búinn að lofa því að fara ef Icesave yrði fellt.
mbl.is Húmorsleysi og neikvæðni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnsýsla .....

Ósköp var þetta nú gott. Bara smáatriði sem vekur athygi mína: hefði ekki mátt kippa þessu í lag með símtali við embættismennina ? Þurfti ráðherrann að mæta á staðinn ? Og hvernig stóð á þeirri einkennilegu tilviljun að þarna var herskari fréttamanna ?

Getur hugsast að allt heila málið hafi verið hannað einhversstaðar ?


mbl.is Mun tryggja að Líf fái líf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gildishlaðið orðalag ....

".. státar sig af að hafa talið stjórnvöldum trú um að svo sé" - segir í endursögn Moggans á frétt BBC.

Á vef BBC segir hins vegar "... Kristjan Loftsson indicated that the export persuaded the government that there was a market"..... sem er harla fjarri "þýðingunni". Í þetta sinn held ég ekki að Mogginn hafi notað þýðingarforrit sitt sem ég hef áður drepið á, heldur hafi blaðamaðurinn einfaldlega misst sig í bræðiskasti yfir fréttinni. Enda er ekki til neitt meira eitur í beinum nýja Moggans en hvalveiðar og andstaða við Evrópusambandsaðild. 
mbl.is Hvalveiðum ætlað að tefja ESB-ferli?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þýðingarforrit ?

Að heiðra samkomulag ?? Ætli Mbl sé farið að notast við þýðingarforrit til að þýða fréttir utanlands frá ? Eða eru blaðamennirnir ekki talandi á íslensku ? Það seinna finnst mér eiginlega líklegra með hliðsjón af frásögn um úrskurð hæstaréttar í farbannsmáli í dag. Sú klausa var með öllu óskiljanleg.

Reyndar finnst mér Mogganum hafa farið aftur að öllu leiti eftir að nýji ritstjórinn tók við. (Undantekning þar frá er etv brotthvarf Sigmunds). Gamli ritstjórinn hafði að vísu vörubifreiðar og farm þeirra mjög á hornum sér og eins mátti finna að hinni kröftugu málsvörn marxísks femínisma sem blaðið hafði þá uppi. Og svo Lesbókarvilpan. En ekkert af þessu hefur skánað og ofaná kemur hið hvimleiða evrópusambandstrúboð ritstjórans og hirðar hans.

 Það sem þó út yfir tekur er að greinargóðum og margfróðum pípara sem ritaði pistla um pípulagnir og þjóðmál í fasteignablaðið var sagt upp störfum vegna þess að hann skorti pólitíska rétthugsun um hlýnun jarðar. Eiginlega er varla hægt að vera áskrifandi að slíku blaði og ég er hálft í hvoru að vona að það hætti að koma út, held ég myndi einskis sakna nema Kalvins.


mbl.is „Síðasta tækifæri“ Rússa og Úkraínumanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Fækkum tófu,

vargfugli og villimink". Þannig hljóðuðu auglýsingar sem voru oft lesnar í útvarpið á árum áður, í nafni Sauðfjárverndarinnar. Eins benti Sauðfjárverndin á sama miðli á margt það gagn sem íslendingar hefðu haft af sauðkindinni og hvatti til þess að ekið væri varlega þar sem sauðfjár væri von. Í ljós kom svo að "Sauðfjárverndin" var roskinn maður búsettur á Selfossi sem bar hag sauðkindarinnar svo mjög fyrir brjósti.

 Það er eins með þessa yfirlýsingu Ingibjargar og auglýsingar Sauðfjárverndarinnar, maður áttar sig ekki alveg á hvers vegna hún er að hafa fyrir þessari yfirlýsingu. Og sennilega eru álíka margir sem gera eitthvað með málflutning hennar nú og þeir sem áður fyrr gripu til vopna gegn tófu og öðrum vargi að áeggjan Sauðfjárverndarinnar.


mbl.is Nauðsynlegt að byggja á árangri Doha-viðræðnanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

HG

Höfundur

Hólmgeir Guðmundsson
Hólmgeir Guðmundsson

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband